19.12.1963
Neðri deild: 37. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1592 í B-deild Alþingistíðinda. (1137)

83. mál, Seðlabanki Íslands

Eysteinn Jónsson:

Þessar umr. hafa nú verið mjög tættar í sundur. Það er æðilangt síðan ég flutti fyrri hluta, þ.e.a.s. það, sem átti að verða fyrri hluti af þessari ræðu. Ég hafði svarað hæstv. viðskmrh. að nokkru leyti, en ekki nándar nærri að öllu leyti. En með tilliti til þess, hvernig ástatt er með afgreiðslu mála nú fyrir jólin, ætla ég að fresta því að flytja fram þau rök, sem ég átti ótalin, og flytja þau fram annaðhvort við 2. eða 3. umr. málsins: