12.05.1964
Neðri deild: 99. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1816 í B-deild Alþingistíðinda. (1202)

83. mál, Seðlabanki Íslands

Forseti (SB):

Þessar umr. hafa nú staðið um 4 klst. Vænti ég, að hv. þm. finnist ekki skert málfrelsi sitt, þó að forseti leggi nú til, að ræðutími verði takmarkaður. Leyfi ég mér því að leggja til, samkv. 37. gr. þingskapa, að ræðutími verði takmarkaður við 10 mínútur, og skoða það samþykkt, ef ekki koma fram mótmæli gegn því.