16.04.1964
Efri deild: 69. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1942 í B-deild Alþingistíðinda. (1452)

128. mál, búfjárhald í kaupstöðum og kauptúnum

Steinþór Gestsson:

Herra forseti. Ég hef lagt fram brtt. við frv. til l. um búfjárhald í Reykjavíkurborg og þremur kaupstöðum. Við 2. umr. um frv. þetta gerði ég grein fyrir afstöðu minni til þess, og vísa ég til þess nú.

Þá lét ég þess getið, að ég mundi bera fram brtt. við 3. umr., og sé ég ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um hana nú, heldur skírskota til fyrri ræðu minnar um þessi málefni.