08.05.1964
Neðri deild: 94. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1957 í B-deild Alþingistíðinda. (1491)

223. mál, lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðarkaupstaðar

Frsm. (Jón Skaftason):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. þessarar hv. deildar hefur haft til athugunar frv. á þskj. 551. um lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðarkaupstaðar. Með bréfi, dags. 6. maí s.l., hefur sýslumaðurinn í Gullbringusýslu í umboði sýslunefndarinnar lýst yfir meðmælum sýslunefndarinnar með frv. Heilbr- og félmn. hefur því orðið sammála um að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt.