11.05.1964
Efri deild: 87. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1958 í B-deild Alþingistíðinda. (1500)
223. mál, lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðarkaupstaðar
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er flutt að beiðni bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og sveitarstjórnar Garðahrepps og fjallar um breytingu á lögsagnarumdæmi þessara sveitarfélaga. Þá hefur sýslunefnd Gullbringusýslu mælt með samþykkt þess. Heilbr.- og félmn. þessarar hv. þd. hefur athugað frv. og leggur einróma til, að það verði samþykkt óbreytt.