12.05.1964
Neðri deild: 97. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1962 í B-deild Alþingistíðinda. (1537)

217. mál, lögsagnarumdæmi Akraneskaupstaðar

Frsm. (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur haft til athugunar frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 484, frv. til l. um stækkun lögsagnarumdæmis Akraneskaupstaðar.

N. sendi frv. til umsagnar sýslumanninum í Borgarfjarðarsýslu, og hefur hann mælt með samþykkt þess. N. var sammála um að leggja til, að frv. yrði samþ. óbreytt.