12.05.1964
Sameinað þing: 77. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2024 í B-deild Alþingistíðinda. (1575)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (BF):

Gengið er til dagskrár og tekið fyrir eina málið, sem er á dagskrá, almennar stjórnmálaumr., útvarpsumr., síðara kvöld. Umr. fer þannig fram í kvöld, að hver þingflokkur fær 50 mínútna ræðutíma, sem skiptist í 3 umferðir, 20–25 mín. í 1. umferð, 15–20 mín. í 2. umferð og 10 mín. í 3. umferð. Röð flokkanna í öllum umferðum verður þessi: Framsfl., Sjálfstfl., Alþfl. og Alþb. Ræðumenn verða fyrir Framsfl.: í 1. umferð, Einar Ágústsson og Gísli Guðmundsson, í 2. umferð Jón Skaftason og í 3. umferð Helgi Bergs. Fyrir Sjálfstfl.: í 1. umferð Ingólfur Jónsson og Þorvaldur G. Kristjánsson, í 2, umferð Gunnar Thoroddsen og í 3. umferð Jóhann Hafstein. Fyrir Alþfl.: í 1. umferð Eggert G. Þorsteinsson, í 2. umferð Emil Jónsson og í 3. umferð Sigurður Ingimundarson. Fyrir Alþb.: í 1, umferð Hannibal Valdimarsson, í 2. umferð Ragnar Arnalds og í 3. umferð Lúðvik Jósefsson.

Hefst nú umr. og tekur fyrstur til máls hv. 11. þm. Reykv., Einar Ágústsson, og talar af hálfu Framsfl.