16.10.1963
Sameinað þing: 3. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2161 í B-deild Alþingistíðinda. (1616)

Olíugeymar í Hvalfirði

Forseti (BF):

Hv. 1. þm. Austf. hefur kvatt sér hljóðs, en hv. þm. hefur þegar talað tvisvar í málinu. Hann fékk að taka þetta mál inn á dagskrá í fyrirspurnarformi, en um fyrirspurnir gildir sú regla samkv. þingsköpum, að hver þm. fær að tala tvisvar sinnum. (Gripið fram í.) Ef hv. þm. leggur á það ríka áherzlu að fá að gera örstutta aths., þá leyfi ég það.