24.10.1963
Neðri deild: 5. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2179 í B-deild Alþingistíðinda. (1633)
Olíugeymar í Hvalfirði
Jón Skaflason:
Herra forseti. Mig langar aðeins til þess að vekja athygli á ósamræmi, sem mér fannst koma fram 1 ræðu hæstv. utanrrh. hér áðan, við það, sem hann hefur áður sagt í umr. um þetta mál. Hæstv. utanrrh. sagði nú, að það væri algild regla, að Atlantshafsbandalagið tæki aldrei neina framkvæmd inn á infrastructure-áætlun, nema áður hafi verið búið að fá samþykki viðkomandi ríkisstj. til þess að hrinda henni í framkvæmd. Áðan sagði hæstv, ráðh., eins og ég hygg að fleiri hv. alþm. hafi kannske tekið eftir, þegar hv. 3. þm. Reykv., Einar Olgeirsson, gekk eftir því að fá sýndar gjörðabækur utanrrn., þá sagði hæstv. ráðh. m.a., að ríkisstj. eða rn. fengi sendar infrastructure-áætlanir atlantshafsbandalagsins, m.a. til þess að kanna það, að inn á þær væru ekki teknar neinar þær framkvæmdir, sem viðkomandi ríkisstj. væri á móti. Ég tel, að þarna stangist tvær staðhæfingar ráðh. á. Í fyrsta lagi hefur hann áður sagt, að aldrei væru teknar inn á slíkar áætlanir framkvæmdir, nema viðkomandi ríkisstj. hefðu áður samþykkt þær. Síðar segir hann, að ríkisstj. séu sendar infrastructure-áætlanir, til þess að þær geti kynnt sér eftir á, hvort eitthvað hafi verið tekið inn á þær, sem viðkomandi ríkisstj. geta ekki sætt sig við.