14.11.1963
Sameinað þing: 16. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2208 í B-deild Alþingistíðinda. (1657)

Breytingar á ríkisstjórninni

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Eins og fram kom raunar hjá hæstv. forsrh., er hér í raun og veru um mannabreytingar einar að ræða í ríkisstj., en ekki venjuleg stjórnarskipti. Mér þykir þó rétt að láta það í ljós við þetta tækifæri, að afstaða Framsfl. til ríkisstj, er að sjálfsögðu sú sama og áður, og hefur sú afstaða nýlega komið greinilega fram hér á Alþingi og því öllum kunn.