28.10.1963
Sameinað þing: 7. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2216 í B-deild Alþingistíðinda. (1665)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 26. okt. 1963.

Jóhann Hafstein, 4. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Sveinn Guðmundsson vélfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Benedikt Gröndal,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Nú verður fundarhlé, á meðan kjörbréfanefnd rannsakar kjörbréf Sveins Guðmundssonar. — [Fundarhlé.]