28.10.1963
Sameinað þing: 7. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2216 í B-deild Alþingistíðinda. (1666)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman og tekið til athugunar kjörbréf Sveins Guðmundssonar vélfræðings, sem er 1. varaþm: Sjálfstfl. í Reykjavíkurkjördæmi, en þess hefur verið óskað, að hann tæki nú sæti á Alþingi í fjarveru Jóhanns Hafsteins, hv. 4. þm. Reykv. N. hefur ekkert fundið athugavert við kjörbréfið og leggur því einróma til, að það verði samþykkt og kjör Sveins Guðmundssonar vélfræðings tekið gilt.