01.11.1963
Sameinað þing: 10. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2218 í B-deild Alþingistíðinda. (1674)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (BF):
Svo hljóðandi bréf hefur borizt:
„Reykjavík, 31. okt. 1963.
Björn Pálsson, 5. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið.
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Jón Kjartansson forstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns. Benedikt Gröndal, forseti neðri deildar. Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Kjörbréf varamanns liggur fyrir, og verður nú gert fundarhlé, meðan kjörbréfanefnd rannsakar það. — [Fundarhlé.]