16.01.1964
Sameinað þing: 34. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2222 í B-deild Alþingistíðinda. (1690)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman og rætt kjörbréf frú Katrínar Smára sem 1. varaþm. Alþfl. í Reykjavík í forföllum hæstv. menntmrh. Kjörbréfanefnd samþykkti einróma að taka kosningu frú Katrínar gilda og mæla með samþykkt kjörbréfs henni til handa.