09.03.1964
Sameinað þing: 51. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2226 í B-deild Alþingistíðinda. (1704)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 7. marz 1964.

Hermann Jónasson, 1. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Bjarni Guðbjörnsson bankaútibússtjóri, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Ó. Ólafsson,

forseti efri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Það er upplýst, að Bjarni Guðbjörnsson bankaútibússtjóri getur ekki tekið sæti á þinginu, og var ætlunin, að 2, varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Halldór Kristjánsson á Kirkjubóli, mætti, en hann hefur tafizt vegna samgönguerfiðleika, er ekki kominn til bæjarins, og kjörbréfið liggur því ekki fyrir. Er því málinu frestað og málið tekið út af dagskrá.