11.03.1964
Sameinað þing: 52. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2226 í B-deild Alþingistíðinda. (1706)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Óskar Jónsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til meðferðar kjörbréf Halldórs Kristjánssonar bónda að Kirkjubóli í Önundarfirði, sem er 2. varaþm. Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi. N. hefur athugað kjörbréfið og leggur einróma til, að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið verði samþykkt.