16.04.1964
Sameinað þing: 65. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2232 í B-deild Alþingistíðinda. (1718)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman til fundar til að athuga kjörbréf Steingríms Pálssonar, sem er 1. varaþm. Alþb. í Vestf., en þess hefur verið óskað, að hann taki nú sæti á Alþ. í fjarveru Hannibals Valdimarssonar, hv. 5. þm. Vestf.

Kjörbréfanefnd finnur ekkert athugavert við kjörbréfið og leggur einróma til, að það verði samþykkt og kosning Steingríms Pálssonar tekin gild.