05.05.1964
Sameinað þing: 72. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2234 í B-deild Alþingistíðinda. (1725)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Einar Ingimundarsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haldið fund til að rannsaka kjörbréf Hermanns Þórarinssonar útibússtjóra á Blönduósi, sem er 1. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurl. v., en þess hefur verið óskað, að hann taki nú sæti á Alþingi í fjarveru séra Gunnars Gíslasonar, hv. 2. þm. — Norðurl. v. Kjörbréfanefnd sér ekkert athugavert við kjörbréfið og leggur einróma til, að það verði samþykkt og kosning Hermanns Þórarinssonar tekin gild.