20.03.1964
Sameinað þing: 56. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2250 í B-deild Alþingistíðinda. (1773)
Þinghlé
forseti (BF):
Forsetar hafa í samráði við ríkisstj. ákveðið að hafa hlé á fundum Alþingis vegna páskahátíðarinnar frá deginum í dag að telja og væntanlega til miðvikudagsins 1. apríl n.k. Verður næsti fundur að öðru leyti boðaður með dagskrá. Ég óska því öllum hv. þm. glæsilegrar hátíðar og sömuleiðis starfsfólki þingsins. Þeim þm., sem ferðast heim til sin um hátíðina, óska ég góðrar heimferðar og heimkomu. Ég vona, að við hittumst allir heilir aftur að loknu páskaleyfi.