13.05.1964
Neðri deild: 100. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 2251 í B-deild Alþingistíðinda. (1779)

Þinghlé

forseti (SB):

Þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. þd. að þessu sinni, leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. góða og ánægjulega samvinnu við mig sem forseta á liðnum vetri. Jafnframt leyfi ég mér að óska hv. þdm. og fjölskyldum þeirra alls velfarnaðar. Utanbæjarþm. óska ég góðrar heimferðar og heimkomu. Að lokum vil ég láta þá ósk í ljós, að við megum allir heilir hittast á nýju þingi.