09.11.1963
Efri deild: 14. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 531 í C-deild Alþingistíðinda. (1866)

56. mál, launamál o.fl.

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Eins og fram hefur komið í þessum umr., hafa framsóknarmenn beitt sér eindregið gegn frv. um launamál o.fl. Við höfum viljað fara samningaleiðina og lagt áherzlu á, að sú leið yrði valin. Við framsóknarmenn viljum því lýsa ánægju okkar yfir því, að nú virðist horfa svo, að samningaleiðin verði farin. Með tilliti til þessa getum við fallizt á, að þessari umr. sé lokið.