10.10.1963
Sameinað þing: 0. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (2)

Rannsókn kjörbréfa

Aldursforseti (ÓTh):

Ég vil leyfa mér að biðja hv. 11. þm. Reykv., Ólaf Björnsson, og hv. 1. þm. Norðurl. v., Skúla Guðmundsson, að vera fundarritara.

Fyrst liggur fyrir að skipa þm. í kjördeildir og ef enginn mælir því gegn, mun ég hafa þann hátt á að lesa upp nöfn þm. í stafrófsröð og biðja skrifstofustjóra Alþingis að draga miða fyrir hönd þm., um leið og nöfn þeirra eru nefnd.