14.04.1964
Neðri deild: 78. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í C-deild Alþingistíðinda. (2159)
202. mál, vinnuvernd
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Það dylst auðvitað engum, sem lítur á þetta frv., að hér er fjallað um mjög merkilegt málefni, og ég kvaddi mér hljóðs til að taka undir þá skoðun, sem komið hefur fram hjá flm. og raunar fleirum, að brýna nauðsyn beri til að setja sérstaka löggjöf um þessi efni. Ég vit leggja áherzlu á, að það verði leitað sem viðtækasts samkomulags um það. Auðvitað er þarna um mörg vandasöm atriði að ræða.
Enn fremur vil ég vegna þess, sem hér hefur verið sagt um vinnulöggjöf, segja, að ég tel í því sambandi mestu máli skipta, að þegar vinnulöggjöfinni verði breytt, verði henni breytt í samvinnu við launþegasamtökin í landinu og efnt verði til þess, að hún gæti orðið endurskoðuð sameiginlega á vegum þeirra og samtaka atvinnurekendanna. Það tel ég alveg undirstöðu þess, að búast megi við góðum árangri af þeirri lagasetningu, sem sett verður. Ég fyrir mitt leyti mundi ekki telja miklar líkur til, að það yrði til góðs að fara að setja nýja vinnulöggjöf í andstöðu við verkalýðssamtökin, í andstöðu við launþegasamtökin, þess vegna þurfi að undirbúa það málefni mjög vel og efna til samvinnu um það.