30.10.1963
Sameinað þing: 8. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í D-deild Alþingistíðinda. (2298)
18. mál, viðgerðarþjónusta fiskileitartækja
Flm. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja till. Þá til þál., sem prentuð hefur verið á þskj. 18, um hreyfanlega viðgerðarþjónustu við síldveiðiflotann. Eins og fram kemur í grg. till. og öllum er kunnugt, hefur fiskafli þjóðarinnar sífellt verið að aukast, og hefur aukning síldaraflans verið þar veigamest, sér i lagi undanfarin 3 ár. Það er fullyrt af sjómönnum, sem veiðar Þessar hafa stundað, að án tilkomu hinna nýju og sífellt fullkomnari veiðitækja hefði aðeins óverulegur hluti þess afla, sem á land hefur komið, veiðzt. Þótt tæki þessi hafi óvéfengjanlega gefið bezta raun á síldveiðunum, er einnig fullyrt og talið nauðsynlegt að hafa þau á öllum öðrum veiðum.
Til upplýsingar um aflaskiptingu undanfarinna ára hef ég aflað mér eftirfarandi talna frá Fiskifélagi Íslands, og til skýringar um heitið „Þorskafli“ er rétt að taka fram, að með því er átt við í skýrslunni nálega allan annan afla en síld og krabbafisk.
Árið 1960 er þessi þorskafli 373 995 tonn, en síldaraflinn það ár er 136437 tonn. 1961 er þorskaflinn 306 402 tonn, en síldaraflinn 325 911 tonn. 1962 er þorskaflinn 286 912 tonn, en síldaraflinn 478127 tonn. Til júníloka þessa árs hefur þorskaflinn verið 265 069 tonn, en síldaraflinn 134 497 tonn.
Af framangreindum tölum má glögglega sjá, hve hlutur síldaraflans er sífellt meiri í heildarfiskveiðunum á undanförnum árum. Á s.l. ári reyndist hann t.d. næstum tvöfalt meiri en þorskaflinn. Verðmætasti hluti síldaraflans hefur verið veiddur, undanfarin ár, svo sem um áratugi, fyrir Norður- og Austurlandi, en veiðisvæðið Þar er mjög reikult í dag og færist e.t.v. um tugi sjómílna á morgun. Til þess að möguleikar eigi að vera á því að veita flotanum alla nauðsynlega þjónustu, þarf því annað tveggja að ske, að setja upp sem flestar þjónustustöðvar um allt Norður- og Austurland eða hafa hreyfanlega þjónustu við flotann, sem gæti fært sig eftir honum og fylgt honum eftir. Fyrir velflestri nauðsynlegri þjónustu er séð í hinum ýmsu bæjum og kauptúnum, er að veiðisvæðinu liggja.
Fyrir einum mikilvægasta lið þessarar þjónustu hefur þó alls ekki verið séð, en það er viðgerðarþjónustan við hin dýrmætu fiskileitartæki. Þrátt fyrir þær staðreyndir, sem fyrir liggja um mikilvægi tækjanna, er þessi þjónusta enn á algeru frumstigi, sem telja verður algerlega ófullnægjandi. 1 grg. till. er t.d. vikið að ástandi þessara mála s.l. sumar. Þá reyndist veiðin meginhluta veiðitímans vera fyrir Austfjörðum, en aðeins á einum stað, Norðfirði, var viðgerðarmaður, og mynduðust oft þar heilar biðraðir skipa, sem biðu eftir viðgerð á þessum dýrmætu tækjum. Það lætur að líkum, hve slík bið getur orsakað mikið og ómetanlegt tjón, þegar hverfa verður af miðunum e.t.v. á beztu veiðidögunum.
Með till. þeirri, sem hér er til umr., er til þess ætlazt, að leitað verði úrbóta um lausn hins alvarlega ástands til að forða frekara tjóni af skorti nauðsynlegrar viðgerðarþjónustu. Staðsetning margra viðgerðarstöðva yrði óhjákvæmilega mjög kostnaðarsöm og erfið vegna hinna breytilegu veiðisvæða, jafnvel frá degi til dags. Af framangreindum ástæðum er í till. sérstaklega bent á nauðsyn hreyfanlegrar þjónustu til viðhalds og viðgerðar tækjanna. Með samþykkt till. er úrbóta að vænta um lausn þessa vanda og að einskis verði látið ófreistað, til þess að því takmarki verði náð.
Herra forseti. Ég legg að lokum til, að að loknum umr. nú verði umr, um till. frestað og henni vísað til hv. allshn.