27.02.1964
Sameinað þing: 47. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í D-deild Alþingistíðinda. (2336)

101. mál, bann gegn tilraunum með kjarnorkuvopn

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Ég er efnislega algerlega sammála yfirlýsingu þeirri, sem í þessari brtt. felst, enda er hún í samræmi við yfirlýsta stefnu Framsfl. Hins vegar tel ég ekki eðlilegt að tengja slíka yfirlýsingu við heimild Alþingis til fullgildingar á samningi um bann við tilraunum með kjarnorkuvopn og hef því í nál. mælt með staðfestingu þess samnings án nokkurs fyrirvara af minni hálfu. Að svo vöxnu máli get ég ekki sagt já við þeirri brtt., sem hér liggur fyrir, og greiði því ekki atkv.