19.03.1964
Sameinað þing: 55. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í D-deild Alþingistíðinda. (2407)

181. mál, úthlutun listamannalauna

Frsm. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Þessari till. um að kjósa 5 manna n. til að úthluta listamannalaunum var vísað til allshn. N. hefur haft þessa till. til athugunar og er sammála um að mæla með því, að hún verði samþykkt, þó með þeirri breytingu, sem gerð er í samráði við flm. till., hæstv. menntmrh., að í stað 5 manna verði kosin 7 manna nefnd til að úthluta þessum listamannalaunum til skálda, rithöfunda og annarra listamanna. Er allshn. sammála um þá afstöðu að mæla með samþykkt till. með þessari breytingu.