15.04.1964
Sameinað þing: 63. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í D-deild Alþingistíðinda. (2497)

211. mál, vegáætlun 1964

Skúli Guðmundsson:

Hér er um mjög stórt mál að ræða, þar sem er vegáætlunin, og ég teldi miklu eðlilegra, að um þetta stóra mál færu fram tvær umr. heldur en ein, og ég vil gera það að till. minni, að það verði tvær umr. ákveðnar um vegáætlunina, en ekki ein.