14.12.1963
Sameinað þing: 28. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í B-deild Alþingistíðinda. (252)

1. mál, fjárlög 1964

Forseti (BF):

Í samræmi við venju allmörg undanfarin ár hefur orðið samkomulag um það milli þingflokkanna að fresta þar til síðar á þinginu hinum svokölluðu eldhúsdagsumr., sem skv. þingsköpum eiga að fara fram við frh. 1. umr. Ég mun nú leita afbrigða frá þingsköpum um þessa frestun eldhúsumr.