13.05.1964
Sameinað þing: 78. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í D-deild Alþingistíðinda. (2582)
137. mál, þörf atvinnuveganna fyrir tæknimenntað fólk
Frsm. (Einar Ágústsson):
Herra forseti. Till. um áætlun um þörf atvinnuveganna fyrir tæknimenntað fólk hefur verið til athugunar hjá allshn., og mælir n. einróma með því, að till. verði samþ.
Nefndin sendi þessa till. til umsagnar nokkurra aðila, og bárust svör frá þeim flestum. Þau eru öll á þann veg, að mjög er mælt með því, að till. verði samþ. Ég vil leyfa mér aðeins að vitna til umsagnar rannsóknaráðs ríkisins, en þar segir, með leyfi forseta:
„Rannsóknaráð ríkisins er þeirrar skoðunar, að hér sé hreyft mjög þýðingarmiklu máli. Það er viðurkennt, að framþróun öll og hagvöxtur er í vaxandi mæli hað tækni og vísindum, en það er frumskilyrði þess, að slík þekking nýtist í atvinnuvegum landsmanna, að nægilegt framboð sé af tæknimenntuðum mönnum. Því miður verður að ætla, að þessu sé mjög ábótavant hér á landi, sérstaklega að tæknifræðingar og iðnfræðingar séu allt of fáir. Í þessu sambandi má vekja athygli á því, að Efnahags- og framfarastofnun Evrópu lét nýlega fara fram ýtarlega könnun á framboði og þörf meðlimaríkjanna fyrir tæknimenntað fólk næstu 15 árin og birti niðurstöður í mjög athyglisverðri bók. Ísland er eitt þriggja meðlimaríkja, sem tóku ekki þátt í þessari athugun. Úr því þyrfti að bæta.“
Og síðan segir, að í sambandi við slíka könnun mætti einnig athuga, á hvaða sviðum atvinnulífsins þörfin er mest, því að ætla má, að þetta sé allbreytilegt. Slíkar upplýsingar gætu þá orðið til leiðbeiningar því æskufólki, sem hyggst ganga tæknibrautina, sem og grundvöllur að endurskoðun kennslukerfisins.
Svar Verkfræðingafélags Íslands gengur mjög í sömu stefnu. Þeir segja, að því máli, sem hér er hreyft, hafi ekki verið nægur gaumur gefinn á undanförnum árum og sé því þannig komið, að við Íslendingar séum langt aftur úr öðrum menningarþjóðum um fjölda tæknimenntaðs fólks. Úr þessu ástandi verður ekki bætt, segir Verkfræðingafélagið, nema með miklu og markvissu starfi á næstu áratugum. Þá er von til þess, að Íslendingar komist undir næstu aldamót jafnfætis nágrannaþjóðunum með fjölda tæknimenntaðs fólks.
Með því að allar þær umsagnir og raddir, sem fram hafa komið, eru mjög þess fýsandi, að till. verði samþ. og athugun sú, sem hún gerir ráð fyrir, nái fram að ganga, sé ég ekki ástæðu til að hafa þessa framsögu lengri, en ítreka það, að allshn. leggur til einróma, að till. verði samþ.