16.12.1963
Sameinað þing: 28. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 386 í B-deild Alþingistíðinda. (265)
1. mál, fjárlög 1964
Jónas Pétursson:
Herra forseti. Ég hef flutt hér eina litla brtt. við 22. gr. fjárlaganna, sem er heimildagreinin. Það er, að í viðbót við þrjár lánsheimildir til samgöngumála á landi komi 3 millj, kr. lánsheimild til byggingar Hofsárbrúar í Vopnafirði. Með tilkomu mjólkurstöðvar og aukinnar mjólkurframleiðslu í Vopnafirði er orðin mikil nauðsyn, að þessi brú verði byggð og það á komandi sumri. En með því að flytja þessa brtt. og æskja þessarar lánsheimildar vildi ég leitast við að tryggja það, að svo geti orðið. En ef fé kynni að verða fyrir hendi til þessarar framkvæmdar með samþykkt vegalagafrv., án þess að skerða fé í aðrar mögulegar samgöngubætur á Austurlandi, verður væntanlega ekki þörf á að nota lánsheimild. En ég tel ekki fært að fara fram á lánsheimildir nema til slíkra varanlegra samgöngumannvirkja, eins og t.d. brýr eru, en á hinn bóginn gildir það ekki um venjulega malarvegi. Sem sagt, aðaltilgangur minn með því að flytja þessa brtt. er að leitast við að tryggja það, að auðið verði að byggja þessa brú á komandi sumri.