15.04.1964
Sameinað þing: 63. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í D-deild Alþingistíðinda. (2757)

179. mál, utanríkisstefna íslenska lýðveldisins

Forseti (SI):

Út af ummælum hv. þm. skal ég aðeins geta þess, að við Þessar útvarpsumr. fengu allir flokkarnir tilkynningu eftir fyrri umr. um, hvernig ræðutíma þeirra væri háttað í fyrri umferðinni og að öðru leyti. Ég er nú ekki með þessar tölur fyrir framan mig, en það ber dálítið á milli. Mér telst til, að sá flokkurinn, sem lengst talaði, hafi farið 6 mínútur yfir, en að sjálfsögðu er rétt að verða við tilmælum ræðumanns um að reyna að ráða bót á þessu framvegis.

Á sama fundi var fram haldið einni umr um till.