21.12.1963
Sameinað þing: 33. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í B-deild Alþingistíðinda. (300)

1. mál, fjárlög 1964

Menntmrh. (Gylfi D. Gíslason):

Herra forseti. Tekjur félagsheimilasjóðs voru auknar mjög verulega á s.l. vori með samþykkt nýrrar löggjafar um skemmtanaskatt, en félagsheimilasjóður fær helming tekna af skemmtanaskatti. Samt eru málefni félagsheimilasjóðs og íþróttasjóðs í athugun hjú ríkisstj. Meðan niðurstaða þeirra athugana liggur ekki fyrir, sé ég mér ekki fært að greiða atkv. með sérstökum fjárveitingum úr ríkissjóði til þarfa félagsheimilasjóðs og segi nei.