09.05.1964
Sameinað þing: 75. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 765 í D-deild Alþingistíðinda. (3123)

145. mál, aðstoð frá Viðreisnarsjóði Evrópuráðsins

Þorvaldur G. Kristjánsson:

Herra forseti. Það líður nú að þinglokum, og með tilliti til þess hafa verið teknar á dagskrá þessa fundar allar þær þáltill., sem afgreiddar hafa verið ágreiningslaust frá n., allar að undantekinni einni þáltill. Það er þáltill., sem ég hef borið fram á þskj. 265, um aðstoð frá Viðreisnarsjóði Evrópuráðsins til þess að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Ég vil leyfa mér að fara þess á leit við hæstv. forseta, að vinnubrögðum verði hagað á þann veg, að þessi þáltill. verði tekin á dagskrá fyrir þingslit eins og aðrar þáltill., sem eins stendur á fyrir.