08.04.1964
Sameinað þing: 59. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í D-deild Alþingistíðinda. (3415)

809. mál, ríkisábyrgðir

Helgi Bergs:

Herra forseti. Ég hef fengið í hendur þessa skýrslu frá hæstv. fjmrh., og hef ég að sjálfsögðu ekki, þar sem ég fékk hana í hendur nú á þessari stundu, haft tækifæri til þess að skoða hana, en ég þykist sjá, að hér muni vera svarað þeirri fsp., sem ég lagði fram. Það var ekki ætlun okkar flm. að efna til neinna umr. um þetta mál, og ég sé þess vegna ekki ástæðu til neinna aths. við þetta. Við munum kynna okkur þessi plögg, og ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þau.