18.04.1964
Sameinað þing: 68. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 947 í D-deild Alþingistíðinda. (3440)
214. mál, síldarleit
Eysteinn Jónason:
Herra forseti. Mig langar aðeins að minnast hér á eitt atriði, af því að tækifæri gefst til þess. Það er nú augljóst, að það hefur verið aukin síldarleit verulega, og það er ágætt og þarf enn að efla þessa leit. Það er sérstaklega eitt atriði, sem mér finnst liggja í sugum uppi, að sé nokkuð áfátt um síldarleitina, og það er, að sé ekki fylgt nógu vel eftir á haustin að fylgjast með því, hvað af síldinni verður, þ.e.a.s. sumarsíldinni, hvað af henni verður á haustin. Og mér finnst, að það þyrfti að leggja mjög aukna áherzlu á að fylgjast rækilega með þessu, hvað af síldinni verður á haustin, um það leyti sem síldveiðin hér fjarar út. Hún fer sjálfsagt ekki langar leiðir í burtu, eins og fiskifræðingar hafa bent á, en þetta finnst mér þurfa að vita meira um. Vildi ég biðja hæstv. ráðh. að taka vel öllum málaleitunum, sem koma fram í þessa átt, því að ég veit, að fiskifræðingarnir hafa áhuga á þessu, sem sé að styðja þá kröftuglega í þessari grein framkvæmdanna.