13.02.1964
Efri deild: 47. fundur, 84. löggjafarþing.
Sjá dálk 1191 í B-deild Alþingistíðinda. (856)

150. mál, eftirlit með opinberum sjóðum

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Á árinu 1935 voru sett lög um eftirlit með sjóðum, sem fengið hafa konungsstaðfestingu á skipulagsskrá. Með þeim var ákveðið, að sameinað þing skyldi kjósa þrjá menn til að hafa eftirlit með og halda skrá yfir sjóði í landinu. Þessum lögum var svo breytt bæði árið 1941 og 1953. Við athugun á þessum málum hefur sú niðurstaða orðið, að óþarft væri að halda þessari nefndarskipan og eðlilegra væri og kostnaðarminna að fela ríkisendurskoðuninni þetta eftirlit, sem lögin hafa fjallað um. Það er meginefni þessa frv. að afnema þessi lög um eftirlit með opinberum sjóðum, en fela framvegis ríkisendurskoðuninni það eftirlit, sem hér er um að ræða.

Ég legg til, að frv. verði vísað til 2, umr. og hv. fjhn.