20.04.1965
Neðri deild: 70. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1217 í B-deild Alþingistíðinda. (1071)

147. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég get ekki tekið góða og gilda þá skýringu, sem hæstv. félmrh. kom með viðvíkjandi vísitöluákvæðinu, sem sett hefur verið í sambandi við lánveitingarnar á árinu sem leið. Hann vitnar þarna í heimild í 1., sem húsnæðismálastjórn hefur til að breyta vaxtakjörum og lánstíma á lánum að fengnu samþykki ríkisstj. Ég fæ ekki séð, að þessi heimild veiti nokkurn rétt til þess að vísitölubinda öll lánin. Ég fæ ekki séð það, get alls ekki fallizt á þá skýringu hæstv. ráðh.