10.12.1964
Efri deild: 29. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 120 í B-deild Alþingistíðinda. (115)

10. mál, almenn hegningarlög

Frsm. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 135, hefur allshn. yfirfarið þetta frv., sem efnislega er aðeins um breytingar á tölum í ákærureglum 2. mgr. 256. gr. 1. og er aðeins leiðrétting á upphæð þar í sambandi við hækkandi verðlag. — Á þskj. 135 mælir n. með samþykkt frv.