01.04.1965
Neðri deild: 61. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1494 í B-deild Alþingistíðinda. (1209)

138. mál, læknaskipunarlög

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Það eru örfá orð. Ég vildi aðeins, áður en umr. lýkur, leyfa mér að þakka hv. heilbr.- og félmn. fyrir að hafa tekið til greina aths. mína við 1. umr. varðandi Raufarhafnarlæknishérað og gert um það till. og hæstv. heilbrmrh. fyrir að hafa fallizt á þá till.