08.05.1965
Neðri deild: 85. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1651 í B-deild Alþingistíðinda. (1503)

197. mál, bankavaxtabréf

Frsm. (Matthías A. Mathiesen):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft frv. þetta til athugunar. Hún mælir með samþykkt þess. Hér er um að ræða sams konar heimild fyrir veðdeild Landsbankans og oft áður hefur verið veitt, þ.e.a.s. um stofnun nýs flokks bankavaxtabréfa.