06.05.1965
Efri deild: 83. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1678 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)
203. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna
Frsm. (Ólafur Björnsson):
Herra forseti. Fjhn. hefur haft mál þetta til athugunar og þó að ekki yrði að vísu af því, sem talað var um á fundi hér í gær, að formenn samninganefndar hæstv. ríkisstj. og formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja mættu á fundi n. og veittu upplýsingar um þessi mál, taldi n. sig hafa sannreynt, að það væri eindregin ósk beggja þessara aðila, að frestir þeir, sem ákveðnir eru í núgildandi l., væru lengdir. En það leiddi til þess, að n. taldi ekki undir neinum kringumstæðum rétt að sporna á móti því og hún leggur einróma til, að frv. þetta verði samþykkt óbreytt.