05.05.1965
Efri deild: 80. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2005 í B-deild Alþingistíðinda. (1940)

195. mál, eftirlaun ráðherra

Frsm. (Björn Jónsson):

Herra forseti. Þetta frv. hefur verið undirbúið af nefnd, sem var skipuð fulltrúum allra þingflokka, jafnhliða því sem sú sama nefnd undirbjó frv. til laga um eftirlaun alþm., sem hér hefur einnig verið til umr. Þetta frv. hefur verið rætt í öllum þingflokkunum og tekin þar afstaða til þess og þm. hafa þannig haft tækifæri til að kynna sér öll efnisatriði frv. Ég sé því ekki ástæðu til að fara út í einstök atriði, nema sérstakt tilefni gefist til. Fjhn. hefur athugað frv. og mælir öll með því, að það verði samþ.