08.05.1965
Efri deild: 85. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2011 í B-deild Alþingistíðinda. (1980)

194. mál, eftirlaun alþingismanna

Frsm. (Björn Jónsson):

Herra forseti. Þetta frv. er samið af n., sem skipuð var fulltrúum allra þingflokkanna. Um þetta mál hefur verið fjallað í hverjum einstökum þingflokki og tekin jákvæð afstaða til frv. og einróma. Þar sem menn eru þannig vel kunnugir öllum málsatriðum, sé ég ekki ástæðu til að rekja efni frv., nema sérstakt tilefni gefist til. Fjhn. hefur athugað frv. og leggur einróma til, að það verði samþ.