11.05.1965
Sameinað þing: 52. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2075 í B-deild Alþingistíðinda. (2013)

Almennar stjórnmálaumræður

Forseti (BF):

Umræðan fer þannig fram í kvöld, að hver þingflokkur fær 55 mínútna ræðutíma, sem skiptist í 3 umferðir: 25 mín. í 1. umferð, 20 mín. í 2. umferð og 10 mín. í 3, umferð. Röð flokkanna í öllum umferðum verður þessi: Sjálfstfl., Alþfl., Alþb. og Framsfl. Ræðumenn verða fyrir Sjálfstfl. í 1. umferð Jóhann Hafstein, í 2. umferð Ingólfur Jónsson og í 3, umferð Magnús Jónsson. Fyrir Alþfl. í 1. umferð Benedikt Gröndal, í 2. umferð Gylfi Þ. Gíslason og í 3. umferð Birgir Finnsson. Fyrir Alþb. í 1. umferð Björn Jónsson og Geir Gunnarsson, í 2. umferð Einar Olgeirsson og í 3. umferð Ragnar Arnalds. Fyrir Framsfl. í 1. umferð Þórarinn Þórarinsson og Ásgeir Bjarnason, í 2. umferð Jón Skaftason og Helgi Bergs og í 3. umferð Ólafur Jóhannesson.

Hefst nú umr. og tekur fyrstur til máls hæstv. dómsmrh., Jóhann Hafstein, og talar af hálfu Sjálfstfl.