10.11.1964
Neðri deild: 13. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2345 í B-deild Alþingistíðinda. (2107)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (SB):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavik, 9. nóv. 1964.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að fyrsti varamaður Alþfl. í Vesturlandskjördæmi, Pétur Pétursson forstjóri, taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.

Benedikt Gröndal,

5. þm. Vesturl:

Til forseta neðri deildar.“

Þar sem kjörbréf Péturs Péturssonar hefur áður verið rannsakað og hann hefur átt sæti á Alþingi áður og undirritað drengskaparheit, þá býð ég hann velkominn til setu í hv. Nd.