22.02.1965
Neðri deild: 42. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2347 í B-deild Alþingistíðinda. (2112)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 22. febr. 1965.

Þar sem ég undirritaður vegna veikinda mun ekki geta sinnt þingstörfum um sinn, leyfi ég mér, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Jón Kjartansson forstjóri, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.

Skúli Guðmundsson.

Til forseta neðri deildar.“

Jón Kjartansson hefur áður tekið sæti á Alþingi og undirritað drengskaparheit um að halda stjórnarskrána og kjörbréf hans hefur veríð rannsakað. Samkv. því tekur hann sæti Skúla Guðmundssonar á Alþingi og býð ég hann velkominn til þingstarfa.