03.03.1965
Sameinað þing: 28. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2347 í B-deild Alþingistíðinda. (2113)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 3. marz 1965.

Einar Ágústsson, 11. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að fara þess á leit, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Kristján Thorlacius deildarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta Sþ.“

Það hefur áður farið fram rannsókn á kjörbréfi Kristjáns Thorlaciusar deildarstjóra, og tekur hann sæti á þinginu í fjarveru Einars Ágústssonar. Býð ég hann velkominn til þingstarfa.