29.03.1965
Sameinað þing: 35. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2349 í B-deild Alþingistíðinda. (2119)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 29. marz 1965.

Davíð Ólafsson, 6. landsk. þm., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að fara þess á leit, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Ragnar Jónsson skrifstofustjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Bjarnason,

forseti Nd.

Til forseta Sþ.“

Rannsókn hefur áður farið fram á kjörbréfi Ragnars Jónssonar skrifstofustjóra. Tekur hann samkv. þessu sæti á þingi sem 6. landsk. þm., og býð ég hann velkominn til starfa.