06.04.1965
Sameinað þing: 39. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2350 í B-deild Alþingistíðinda. (2121)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Matthías A. Mathiesen):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Sigfúsar J. Johnsens, 2. varaþingmanns Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, en eins og fram kom áðan, hefur hv. 3. þm. Suðurl. óskað eftir því, að varamaður sinn taki sæti á Alþingi og þar sem 1. þm. kjördæmisins situr nú á hv. Alþingi sem varaþm., þá mælir n. með því, að kosning Sigfúsar verði tekin gild og kjörbréfið verði samþ.