08.05.1965
Sameinað þing: 50. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2355 í B-deild Alþingistíðinda. (2135)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Á 50. fundi í Sþ., 8. maí, mælti forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt:

„Reykjavík, 7. maí 1965.

Guðmundur Í. Guðmundsson, 4. landsk. þm., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun ekki geta sinnt þingstörfum næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis óska þess, að þar sem 1. varamaður landsk. þm. Alþfl., Friðjón Skarphéðinsson bæjarfógeti, er erlendis, taki 2. varamaður landsk. þm. Alþfl., Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur, sæti á Alþingi í fjarveru minni:

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Sigurður Ó. Ólafsson,

forseti Ed.

Til forseta Sþ.“

Unnar Stefánsson viðskiptafræðingur hefur áður átt sæti á þingi sem varamaður Alþfl., og staðfest er, að 1. varamaður Alþfl., Friðjón Skarphéðinsson, er erlendis. Tekur Unnar Stefánsson því sæti 4. landsk. þm. á þinginu að þessu sinni og býð ég hann velkominn til starfa.